Tíkin mín er hvolpafull — meðgangan
Eðlileg meðganga hjá tíkum varir um 63 daga. Hér er yfirlit yfir helstu stig meðgöngu, hvernig hún er staðfest og hvað er gott að hafa í huga fyrir gotið.

Eðlileg meðganga tíka tekur um 63 daga frá egglosi til gots og skiptist gjarnan í þrjú 21-daga tímabil.
Fyrsti þriðjungur
Fyrstu þrjár vikurnar eru fá ytri merki um meðgöngu. Þegar líður á tímabilið geta sumar tíkur misst matarlystina vegna hormónabreytinga. Gott er að bjóða smærri máltíðir oftar yfir daginn og kíkja með tíkina til dýralæknis ef einhverjar spurningar vakna.
Annar þriðjungur
Á 4.–6. viku fer maginn að gildna og spenar stækka. Á þessu tímabili er fyrst hægt að staðfesta meðgöngu með sónarskoðun, þreyfun af reyndum aðilum eða með Relaxin blóðprófi sem mælir hormón frá legkökum.
Þriðji þriðjungur
Á 7. viku verður meðgangan augljós. Tíkin róast oft og spenar fara að undirbúa mjólkurframleiðslu. Hægt er að taka röntgenmynd seint á meðgöngu (gjarnan 55.–59. degi) til að áætla fjölda hvolpa.
Undirbúningur fyrir got
Ráðlegt er að ormahreinsa tíkina undir lok meðgöngu og halda hreyfingu rólegri. Líkamshiti tíkarinnar fellur oft undir 37°C um sólarhring fyrir got — því velja sumir að mæla hitann reglulega síðustu vikuna.
Aldrei er hægt að vita fyrirfram hvort fæðingarhjálp eða keisaraskurður er nauðsynlegur. Gott er að vera í sambandi við dýralækninn sinn þannig að allir séu undir það búnir ef á þarf að halda.
Höfundar greina hér eru dýralæknar stofunnar.
