Þjónusta

Almenn dýralæknaþjónusta

Við bjóðum upp á alla almenna dýralæknaþjónustu fyrir smádýr. Tímabókanir og verð fyrir almenna þjónustu má sjá á Noona. Stærri aðgerðir þarf þó að bóka í síma 578 5454.

Heilbrigðisskoðanir

Almennar skoðanir þar sem farið er yfir heilsu dýrsins og næstu skref metin eftir þörfum. Góð heilsufarsskoðun er grunnurinn að öllum sjúkdómsgreiningum.

Bólusetningar

Hvolpar eru bólusettir 8 vikna, 12 vikna og 4–6 mánaða og fullorðnir hundar ári seinna og svo þriðja hvert ár. Kettlingar eru bólusettir 10–12 vikna og aftur 14–16 vikna, fullorðnir kettir á þriggja ára fresti.

Lyflækningar

Stofan er vel búin tækjum til rannsókna og dýralæknarnir greina og meðhöndla sjúkdóma hjá smádýrum með eftirfylgni eftir þörfum.

Skurðaðgerðir

Fullbúin skurðstofa þar sem framkvæmdar eru helstu skurðaðgerðir, geldingar, ófrjósemisaðgerðir og mjúkvefsaðgerðir.

Tannhreinsun og tannaðgerðir

Fullkominn búnaður fyrir tannaðgerðir. Dýralæknir með sérhæfingu í tannlækningum framkvæmir m.a. rótafyllingar og aðrar aðgerðir sem bjarga tönnum.

Ormahreinsun

Ráðlegt er að ormahreinsa hunda og ketti reglulega. Veiðihundar og hundar sem eru mikið á útivistarsvæðum mega gjarnan vera hreinsaðir tvisvar á ári.

Ráðgjöf um fóðrun og umhirðu

Ráðgjöf um fóðrun, almenna umhirðu og velferð smádýra.

Neyðarvakt

Vaktarsamstarf utan opnunartíma

Almennur opnunartími er virka daga 08:00–17:00 og laugardaga 10:00–12:00. Utan þess er Dýralæknastofa Reykjavíkur hluti af vaktarsamstarfi dýralækna á höfuðborgarsvæðinu og tekið er á móti sjúklingum sem þurfa aðstoð allan sólarhringinn. Símanúmer Animalíu fyrir neyðartilfelli er 555-0112.

Þarftu að panta tíma?

Hafðu samband í síma 578 5454 eða bókaðu tíma á netinu á Noona.