Allar greinar
15.2.2016 · Gæludýr, Hundur, Köttur, Kanína, Lög

Örmerki — hvað, hvernig og hvers vegna?

Reglugerð um velferð gæludýra á Íslandi gerir kröfu um örmerkingu hunda, katta og kanína. Hér er farið yfir hvað örmerki er, hvernig það er sett í og af hverju það skiptir máli.

Örmerki lesið með skanner

Reglugerð um velferð gæludýra á Íslandi krefst þess að allir hundar, kettir og kanínur séu örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn. Eigandi ber ábyrgð á réttum skráningarupplýsingum og kostnaði við merkingu.

Hvað er örmerki?

Örmerkið er lítil tölvuflaga á stærð við hrísgrjón sem sett er undir húð á hálsi eða milli herðablaða. Það ber 15 stafa kóða samkvæmt alþjóðlegum ISO-staðli (ISO 11784/11785). Hver kóði er einstakur og virkar eins og kennitala dýrsins.

Hvernig er örmerking framkvæmd?

Örmerking er framkvæmd af dýralækni. Flagan kemur tilbúin í sprautu og er sett í með nál. Aðgerðin tekur stutta stund og veldur dýrinu yfirleitt litlum óþægindum.

Af hverju skiptir þetta máli?

Örmerki er öryggisatriði. Það kemur týndum og slösuðum dýrum reglulega aftur til eigenda sinna. Á Íslandi eru hundar og kettir skráðir í gagnagrunninn dyraaudkenni.is þar sem grunnupplýsingar um dýrið og eiganda eru geymdar.

Hvaða dýr þarf að örmerkja?

Skylda nær til allra hunda, katta og kanína innan 12 vikna aldurs. Hestar hafa lengi verið örmerkingar- og skráningarskyldir. Eigandi ber ábyrgð á að upplýsingar séu réttar á hverjum tíma.

Höfundar greina hér eru dýralæknar stofunnar.